24.11.1948
Sameinað þing: 21. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 792 í D-deild Alþingistíðinda. (5121)
71. mál, ábyrgð ríkissjóðs
Fjmrh. (Jóhann Jósefsson):
Herra forseti. Út af fyrirspurnum hv. 1. þm. Reykv. hef ég látið gera skrá, í þetta sinn ýtarlegri, yfir ábyrgðir ríkissjóðs og skiptingu þeirra, heldur en áður hefur átt sér stað. Það er alveg rétt, sem hv. þm. sagði, að ég hef við ýmis tækifæri bent á, að sumar ábyrgðir, sem ríkið stæði í, væru orðnar nokkuð háar og að það þyrfti eftir megni að forðast það, að ríkissjóður gengi í ábyrgðir, nema þar, sem það væri algerlega nauðsynlegt. Ríkisábyrgðir eru nú sem stendur, eftir því sem upp var tekið í fjmrn., miðað við 31. október, kr. 301.503.820,00 og skiptast eins og hér segir:
1.
Bæjar- og sveitarfélög (aðall.
v/hafna- og raforkuframkv.)
kr.94.330.000,00
2.
Ríkisfyrirtæki (landssmiðjan
2,45 millj., þjóðleikh. 813,420.)
3.263.420,00
3.
Einkafyrirtæki (þar af Slipp-
fél. í Rvík kr. 2.798 þús. ) -
5.238.000.00
4.
Opinberar stofnanir (þar af
veðd. Landsb. kr. 38.325 þús.) -
55.940.400,00
5.
Samvinnufél., sbr. meðf. skrá
kr.
36.162.000,00
6.
Skuld Stofnlánad. Landsb. v.
seðlabankann pr. 3/11 '48
-
90.370.000,00
7.
Vaxtabréf Stofnlánadeildar
Landsbankans
-
16.200.000,00
Alls
kr.
301.503.820,00
Það er að vísu ekki spurt sérstaklega um
samvinnubyggingarfélögin, en mér þykir rétt
að láta þess getið hér, og er þá fyrst ríkisábyrgðin fyrir
Byggingarsamv.fél.
Akureyrar
kr.
270.000,00
- -
Árroða
-
1.760.000,00
- -
atvinnubílstj.
-
500.000,00
- -
bankamanna
-
1.656.000,00
- -
barnakennara
-
2.575.000,00
- -
Borg
-
280.000.00
- -
Egilsstaðak.
-
200.000,00
- -
Garð
-
375.000,00
- -
Hofgarð
-
2.610.000,00
- -
Ísafjarðar
-
340.000,00
- -
Klett
-
175.000,00
- -
Neskaupst.
-
250.000,00
- -
prentara
-
2.050.000,00
- -
Ólafsvíkur
-
560.000,00
- -
póstmanna
-
150.000,00
- -
Siglufjarðar
-
350.000,00
- -
símamanna
-
2.593.000,00
- -
háskólans
-
1.900.000,00
- -
ríkisstofnana
-
2.831.000,00
- -
stýrimanna
-
- -
Stykkishólms
-
880.000,00
- -
stjórnarr.
-
3.690.000,00
- -
Reykjavíkur.
-
9.021.000,00
- -
strætisvagna
-
1.146.000,00
Alls
kr.
36.162.000,00
Ég hef ekki orðið var við það, að það hafi orðið nein vanskil hjá þessum samvinnubyggingarfélögum, enda er tíminn ekki langur, nema hjá Byggingarsamvinnufélagi Ólafsvíkur. Það hefur ekki getað staðið í skilum, og hafa nú verið lögð drög til þess að ná því fé. Það eru fasteignir um að ræða þar og ekki líkindi til, að það þurfi að verða tap á því.
Þá er spurt undir lið 2, hvaða aðilar hafi ekki getað staðið í skilum með ríkistryggð lán og hversu mikið ríkissjóður hafi lagt fram vegna slíkra ábyrgða og hvernig sé útlit um endurgreiðslu. Ég hef hér skrá yfir þá aðila, sem ríkissjóður hefur fram að þessu orðið að aðstoða með greiðslur vegna ábyrgða.
Greiðslur vegna ábyrgða eru samtals 31. okt. 1948 kr. 9.556.639,00, og skiptist fé þetta þannig:
1.
Andakílsárvirkjun
kr.— 80.000,00
2.
Neskaupstaður, barnaskólalán
frá 1935
38.000,00
3.
Búðahreppur, Fáskrúðsfirði
30.000,00
4.
Flateyjarhreppur
19.500,00
5.
Húsavíkurhreppur, höfnin
204.800,00
6.
Hofshreppur, Skagafjarðars.
23.900,00
7.
Siglufjarðarkaupst., Skeiðs-
fossvirkjun
1.277.103,00
8.
Siglufjarðarkaupst., Rauðka
101.400,00
9.
Byggingarsamvinnufél. Ólafs-
víkur
80.300,00
10.
Skagastrandarhöfn
441.600,00
11.
Sauðárkrókshreppur kr.
5.200,00
12.
Stokkseyrarhreppur
31.400,00
13.
Síldarverksmiðjur ríkisins
7.165.561.00
14.
Vestmannaeyjakaupstaður,
rafveitan
18.800,00
15.
Landshafnir
39.075,00
Ábyrgðargreiðslur vegna þeirra, sem komizt hafa í vanskil á árunum 1946–1948, nema kr. 9.217.665,00. Þeir aðilar eru nr. 1, 4, 5, 6, 7, 8, 9, 10, 13, 14 og 15.
Þá ætla ég, að gefnar séu upplýsingar um það, sem þessi fsp. fer fram á. En þetta er mjög víðtækt mál, og mætti halda uppi endalausum umr. um það. En þó sé ég ekki ástæðu til að eiga frekari hlut í þeim, og er ég þeirrar skoðunar, að tímann eigi að nota til þess að gefa upplýsingar án þess að teygja úr umr.