02.12.1948
Sameinað þing: 23. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 819 í D-deild Alþingistíðinda. (5171)

919. mál, sóttvarnarstöðvar í sambandi við innflutning sauðfjár

Fyrirspyrjandi (Jónas Jónsson):

Herra forseti. Innflutningur sauðfjár er gamalt vandamál þessarar þjóðar. Ég þarf ekki að fjölyrða um þetta mál, því að fyrirspurnin er glögg. Ég óska eftir upplýsingum um, hvað stjórnin hefur gert í þessu efni og hvað það hefur kostað og hvert stjórnin stefnir í þessu efni með framkvæmdir.