26.01.1949
Sameinað þing: 32. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 832 í D-deild Alþingistíðinda. (5215)

922. mál, þingfréttir í útvarpi

Forsrh. (Stefán Jóh. Stefánsson):

Herra forseti. Út af þessari fyrirspurn vil ég taka það fram, að forsrh. og ríkisstj. hafa ekki með það að gera, hvernig hagað er fréttaflutningi frá Alþingi, heldur eru það forsetar þingsins, sem sjá um slíkt. Af þessari einföldu ástæðu get ég ekki svarað þessum fyrirspurnum.