03.03.1949
Neðri deild: 74. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 309 í B-deild Alþingistíðinda. (531)

119. mál, gjaldaviðauki 1949

Frsm. (Ásgeir Ásgeirsson):

Herra forseti. Meiri hl. n. leggur til, að frv. verði samþ. með þeim breyt., sem hér um ræðir, hækkun á gjöldum um eftirlit með skipum. Þessi hækkun, 200% viðauki, hefur gilt á síðasta ári, og sér meiri hl. n. ekki ástæðu til að breyta þessu frá því, sem verið hefur.