06.04.1949
Sameinað þing: 63. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 879 í D-deild Alþingistíðinda. (5324)

931. mál, tolleftirgjöf af bifreiðum

Fyrirspyrjandi (Jónas Jónsson):

Herra forseti. Ég læt mér vel líka, að hæstv. ráðh. upplýsi málið á þennan hátt, því að ég tel ekki skipta máli, þó að t.d. veikur maður fái undanþágu á slíkum tollum. Hitt er nauðsynlegt að upplýsa og koma í veg fyrir, ef fjöldi manna afla sér sjálfir hlunninda með þessu móti.