27.04.1949
Sameinað þing: 69. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 880 í D-deild Alþingistíðinda. (5330)

931. mál, tolleftirgjöf af bifreiðum

Fjmrh. (Jóhann Jósefsson):

Mér er ekki kunnugt um, að neinir skrifstofustjórar hafi flutt inn bifreiðar á þennan hátt. Hjá núverandi ríkisstj. er því þannig háttað, að þrír af ráðh. eiga sínar bifreiðar sjálfir, en aðrir hafa þær bifreiðar, sem ríkið leggur þeim til. Þá er mér ekki kunnugt um neina verzlun með bifreiðar þessar, sem hv. þm. talar um.