09.03.1949
Sameinað þing: 47. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 890 í D-deild Alþingistíðinda. (5362)

935. mál, leiga á jarðhúsum

Atvmrh. (Bjarni Ásgeirsson):

Ég hef áður skýrt frá afstöðu forstjóra grænmetisverzlunarinnar. Hann vildi ekki taka öll húsin í sína umsjá, en gat þess, að hann vildi taka nokkurn hluta þeirra. Hann vildi ekki taka eins mikinn hluta af þeim og ýmsir aðrir. En af 6–7 stofnunum, sem til þekkja og aðstöðu sinnar vegna voru beðnar að dæma um þetta, leit hann einn þessum augum á málið. Og þó að ég beri mikla virðingu fyrir hans þekkingu og dugnaði, þá taldi ég réttara að fara eftir áliti allra hinna.