09.03.1949
Sameinað þing: 47. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 890 í D-deild Alþingistíðinda. (5363)

935. mál, leiga á jarðhúsum

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Ég vil upplýsa hæstv. atvmrh. um það í sambandi við jarðhúsin, að forstjóri grænmetisverzlunarinnar hefur lýst yfir, og það er bókað eftir honum í gerðabók fjvn., að hann hafi verið á móti því að taka á leigu nokkuð af jarðhúsunum. Hann vildi ekki nota þau, honum þóttu þau allt of dýr til að geyma í þeim grænmeti. Ég dæmi ekki um, hvort þetta er rétt, en ég vildi láta þetta koma fram, en hæstv. ráðh. segir, að húsin hafi verið tekin með hans samþykki. Mér þykir einkennilegt, ef forstjóri slíkrar stofnunar, sem hefur 8 millj. kr. veltu, getur ekki komið sér saman við hæstv. ráðh. um svo stórt atriði sem hér er um að ræða.