09.03.1949
Sameinað þing: 47. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 892 í D-deild Alþingistíðinda. (5369)
936. mál, riftun kaupsamnings um Silfurtún
Fyrirspyrjandi (Finnur Jónsson):
Hæstv. atvmrh. hefur við umr. lýst yfir, að leigusamningur sá, sem gerður var um trésmíðaverkstæðið í Silfurtúni og fól í sér heimild handa ríkisstj. til þess að kaupa eignina síðar, hafi verið borinn undir ríkisstj. Nú kom það ekki fram hjá ráðh., hvort það, að heimildin væri notuð, hafi á sínum tíma verið borið undir alla ríkisstj., en ég vildi gjarnan heyra, hvort svo væri, og hef því borið fram þessa fyrirspurn.