16.03.1949
Sameinað þing: 49. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 900 í D-deild Alþingistíðinda. (5396)

160. mál, aðflutningar til Keflavíkurflugvallar o.fl.

Forseti (JPálm):

Ég vil taka fram út af aths. hv. 2. þm. Reykv., að auðvitað verður þessari fyrirspurn svarað, en svarið frestast nú vegna þess, að tveir hæstv. ráðh., utanrrh. og flugmrh., sem þessi fyrirspurn var líka send til, eru fjarstaddir, og samkvæmt upplýsingum hæstv. fjmrh. er hann ekki viðbúinn að svara þeim fsp., sem heyra undir hann.