16.03.1949
Sameinað þing: 49. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 902 í D-deild Alþingistíðinda. (5398)

160. mál, aðflutningar til Keflavíkurflugvallar o.fl.

Forseti (JPálm):

Út af þeirri efasemd, sem kom fram, hvort þessari fyrirspurn yrði svarað, þá er hún ástæðulaus. Það hefur áður komið fyrir og getur oft komið fyrir, að verði að fresta að svara fyrirspurnum. Eins og ég tók fram, verður að fresta að svara þessari fyrirspurn nú og þar til í næsta fyrirspurnatíma, sem er næsta miðvikudag. Ég trúi ekki, að það velti á miklu, hvort þessari fyrirspurn er svarað nokkrum dögum fyrr eða síðar.