06.04.1949
Sameinað þing: 63. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 904 í D-deild Alþingistíðinda. (5408)
160. mál, aðflutningar til Keflavíkurflugvallar o.fl.
Samgmrh. (Emil Jónsson):
Herra forseti. Það mun heyra undir viðskmrn. að svara spurningunni um, hversu mikinn gjaldeyri bankarnir hafi fengið í sambandi við Bandaríkin og amerísk félög, sem starfa á Keflavíkurflugvelli, og hins vegar í sambandi við flutningsgjöld. Ég hef leitað til gjaldeyriseftirlitsins og fengið það svar, að árið 1948 nam þessi fjárupphæð 2 millj. og 560 þús. kr. og fargjöldin námu alls 20 millj. og 406 þús. kr. Með þessum tölum ætlast ég til, að þessari spurningu sé svarað.