06.04.1949
Sameinað þing: 63. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 905 í D-deild Alþingistíðinda. (5410)

160. mál, aðflutningar til Keflavíkurflugvallar o.fl.

Fyrirspyrjandi (Einar Olgeirsson):

Herra forseti. Ég þakka þær upplýsingar, sem ég hef fengið varðandi þær spurningar, sem ég hef borið fram, en vil leyfa mér að óska eftir svari við þeim liðum, sem ekki hefur verið svarað, við fyrsta tækifæri, en það er 1. og 5. liður. Það er sennilega flugmrh., sem svarar spurningunni um fjölda Bandaríkjamanna hér á flugvellinum.