20.04.1949
Sameinað þing: 66. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 905 í D-deild Alþingistíðinda. (5414)

160. mál, aðflutningar til Keflavíkurflugvallar o.fl.

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Ég vil taka það fram hér, áður en farið er að ræða einstök atriði, að 5. liður I. fsp. á þskj. 442 mun heyra undir dómsmrn., en ég hélt, að svo væri ekki. Ég áleit, að þessu hefði verið svarað meðan ég var fjarverandi, en það mun ekki hafa verið gert. Ég vil taka það fram, að hér er eingöngu um persónulega yfirsjón hjá mér að ræða, og skal ég gera ráðstafanir til að afla upplýsinga um þetta mál og svara þessari fyrirspurn við næsta tækifæri.