27.04.1949
Sameinað þing: 69. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 906 í D-deild Alþingistíðinda. (5417)

160. mál, aðflutningar til Keflavíkurflugvallar o.fl.

Fyrirspyrjandi (Einar Olgeirsson):

Herra forseti. Ég hefði að vísu kosið, að þessar upplýsingar væru dálítið nákvæmari, en þær eru. Í fyrirspurninni var spurt um magn þessara tegunda, sem hér eru taldar upp, og verð á þeim. Það hefði náttúrlega verið nauðsynlegt að fá þær upplýsingar til þess að geta byggt á þeim það, sem ég álít, að þurfi að gera, sem sé þær kröfur, sem ég álít, að við Íslendingar eigum um toll af þessum innflutningi. Ég mun þó ekki gera aðra fyrirspurn eða ræða meira um þetta hér. Ég þakka fyrir þessar upplýsingar, en mér hefði þótt vænt um, að fyrirspurninni hefði verið nákvæmar svarað. Er þá eftir 5. liður fyrirspurnarinnar, og vona ég, að honum verði svarað sem fyrst.