06.04.1949
Sameinað þing: 63. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 911 í D-deild Alþingistíðinda. (5436)

941. mál, fjárskipti í Eyjafirði og Skagafirði

Fyrirspyrjandi (Jónas Jónsson):

Ég hef spurt um fjárskiptin í Eyjafirði og Skagafirði. Okkur, sem stöndum að fjárskiptum í sýslum norðanlands, þykir miklu skipta, hvernig fer um þetta mál. Vænti ég, að hæstv. ríkisstj. muni svara þannig, að það gleðji hana, að fjárskiptin séu látin fara fram.