06.04.1949
Sameinað þing: 63. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 912 í D-deild Alþingistíðinda. (5442)

942. mál, rannsóknarstöðin á Keldum

Fyrirspyrjandi (Jónas Jónsson):

Ég tel mikils virði, að ríkisstj. gefi skýrslu nokkra um þau atriði, sem ég spyr um. Það standa náttúrlega vonir til, að stöð þessi verði að miklu gagni í framtíðinni. Ég tel rétt að fá að vita, hvað landbrh. hugsar sér að þetta verði í stórum stíl og hver verkefni stöðinni eru ætluð.