05.04.1949
Efri deild: 82. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 339 í B-deild Alþingistíðinda. (629)

13. mál, ríkisborgararéttur

Forseti (BSt):

Mér skildist, að ósk frsm. væri að fresta atkvgr. Ég vildi gjarna flýta málinu eins og hægt er, en verð þó að verða við þeirri ósk, nema allir vilji taka brtt. sínar aftur til 3. umr.(GJ: Er það í þeirri von, að þær verði samþykktar?) Meðal annars. — — Samkvæmt ósk nefndarinnar er atkvgr. frestað og málið tekið út af dagskrá.