27.10.1948
Neðri deild: 7. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 360 í B-deild Alþingistíðinda. (655)

16. mál, áburðarverksmiðja

Atvmrh. (Bjarni Ásgeirsson):

Ég vil aðeins skýra hv. þm. frá því, að ég fékk þessar upplýsingar, hvað langan tíma tæki að fullvirkja Sogið, frá raforkumálastjóra, sem hefur verið beðinn um þessar upplýsingar.

Um þá stofnun, sem úthlutar áburðinum, vil ég taka það fram, að hún er stofnsett af Sameinuðu þjóðunum, og ég veit ekki betur en að Rússar séu í henni líka. Það hefði því ekki verið hægt að ganga fram hjá þeirri stofnun.