29.04.1949
Efri deild: 91. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 493 í B-deild Alþingistíðinda. (750)

16. mál, áburðarverksmiðja

Gísli Jónsson:

Eftir að hæstv. forseti hefur sagt, að ekki sé hægt að taka till. aftur, þegar séð er, hvernig fer um till. á þskj. 596, verð ég að taka till. mína á þskj. 534 aftur nú, en geri það að sjálfsögðu í því trausti, að hin till. verði samþ.

Brtt. 609 felld með 9:3 atkv.

Brtt. 596 samþ. með 9:3 atkv.

Frv., svo breytt, samþ. með 9:3 atkv. og endursent Nd.