10.05.1949
Efri deild: 102. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 506 í B-deild Alþingistíðinda. (769)

16. mál, áburðarverksmiðja

Björn Ólafsson:

Herra forseti. Ég vildi aðeins með örfáum orðum láta í ljós skoðun mína á þeim breyt., sem gerðar hafa verið í Nd. á þessari gr. frv. Ég get ekki betur séð en að þær breyt., sem gerðar hafa verið, spilli frv. ekki á neinn hátt, og get ég fyrir mitt leyti vel fellt mig við þær eins og þær eru komnar inn í frv. frá Nd.