27.10.1948
Efri deild: 6. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 42 í B-deild Alþingistíðinda. (79)

27. mál, bifreiðaskattur o.fl.

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Vegna þess að fjmrh. er ekki kominn, vil ég að nafninu til gera grein fyrir þessu frv. Eins og menn sjá, var nauðsynlegt að setja brbl. um skattheimtu þá, sem hér um ræðir, vegna þess að það beinlínis gleymdist að framlengja heimildina til að innheimta gjald þetta, en hins vegar er þó gert ráð fyrir þessum tekjum í sjálfu lagafrv. Það var því nauðsynlegt að setja brbl. um þetta, og er þetta frv. flutt til staðfestingar á þeim.