03.12.1948
Neðri deild: 26. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 527 í B-deild Alþingistíðinda. (816)

8. mál, Landsbókasafn

Finnur Jónsson:

Ég er þakklátur hæstv. menntmrh. fyrir hans ágætu upplýsingar. En ég hefði óskað eftir að frsm. gerði grein fyrir þeim höfuðbreytingum, sem gerðar yrðu á notkun safnsins frá því, sem verið hefur, og skýrði fyrir hv. d., hvernig þetta mál er vaxið. Ef frsm. getur ekki gefið þessar upplýsingar, vil ég ítreka þau tilmæli, að málinu verði frestað, þar eð ég hef ekki haft tækifæri á að slá upp eldri lagaákvæðum, sem gilt hafa og gilda enn í þessu efni.