06.12.1948
Neðri deild: 27. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 533 í B-deild Alþingistíðinda. (827)
8. mál, Landsbókasafn
Finnur Jónsson:
Herra forseti. Mér þykir vænt um að heyra, að till. mín verður tekin til athugunar í hv. menntmn., en út af nokkrum atriðum í ræðu hv. frsm. vil ég benda á, að þar sem hann talar um, að frv. sé flutt vegna þess, að starfshættir landsbókasafnsins séu ekki í samræmi við lögin frá 1907, þá stendur ekkert um starfshætti safnsins í þeim lögum. Þar er aðeins ákveðið, að stjórnarráðið skuli hafa með hendi yfirstjórn safnsins, og þar er ákveðið að skipa landsbókavörð og aðstoðarbókaverði, en um starfshætti safnsins er ekkert í lögunum, og þetta bendir til þess, að hv. frsm. hafi ekki kynnt sér núgildandi l. um landsbókasafn. Nú hafa starfshættir verið þeir, að landsbókasafnið safnar erlendum og innlendum ritum, svo sem gert er ráð fyrir í þessu frv. Hins vegar hefur safnið rekið lestrarsal og haft með höndum einhverja útlánastarfsemi. Hv. frsm. sagði, að ekkert í frv. gæfi til kynna breytingar á starfsháttum safnsins. En með þá reynslu, sem fengizt hefur af starfsháttum safnsins, er þetta rangt, þar sem einu skyldurnar, sem safninu eru lagðar á herðar með þessu frv., eru að safna bókum og kynna íslenzkar bókmenntir á erlendum vettvangi. Ég efast ekki um, að sú yfirlýsing hæstv. menntmrh., sem hv. frsm. vitnaði til um, að engar breytingar á starfsháttum safnsins séu fyrirhugaðar, sé rétt, en sú yfirlýsing gildir aðeins meðan hann er menntmrh., en ég er því miður hræddur um, að hann verði ekki jafnlanglífur í sæti menntmrh. eins og landsbókasafnið, og þá er ég hræddur um, að eftirmaður hans muni frekar telja sig bundinn af gildandi lögum, en yfirlýsingu fyrirrennara síns. Hv. frsm. sagði, að færa ætti með l. starfshætti safnsins til samræmingar við það, sem nú væri, en það verður því aðeins gert, að í frv. verði tekin ákvæði um það, hvernig landsbókasafnið eigi að kynna Íslendingum bækur sínar. Ég lít svo á, að með því að samþ. brtt. mína, þá náist þetta, og eingöngu á þann hátt náist það, sem hv. frsm. sagði, að væri meiningin, sem sé það, að breyta ekki starfsháttum landsbókasafnsins frá því, sem nú er.