04.11.1948
Efri deild: 8. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 47 í B-deild Alþingistíðinda. (87)

27. mál, bifreiðaskattur o.fl.

Ásmundur Sigurðsson:

Herra forseti. Ég ætla aðeins að segja örfá orð, vegna ræðu hv. 2. þm. Árn., þó að ég hafi ekki gert ráð fyrir að tala meira um þessa till. í þetta sinn. Ég vil benda á það í sambandi við ræðu hans, að það er svo fjarri því, að þ. hafi ákveðið að byggja þessa brú á Hvítá hjá Iðu á einhverjum ákveðnum tíma og ekki megi byggja aðrar brýr á undan henni. Ég get ekki fallizt á rök hv. þm. um það, að sjálfsagt sé að láta þessa brú verða á undan brúnni yfir Jökulsá í Lóni. Ég tel í hæsta máta vafasamt, að brúin yfir Hvítá hjá Iðu sé rétthærri eða nauðsynlegri, en brúin yfir Jökulsá í Lóni.