10.05.1949
Efri deild: 102. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 559 í B-deild Alþingistíðinda. (892)

8. mál, Landsbókasafn

Björn Kristjánsson:

Það er upplýst, að þessi tala sé tala þeirra, sem skipaðir hafa verið undanfarin ár til bráðabirgða, en eigi með l. Kom fram í umr., að ekki mætti spara þetta. En vegna þess, að hér er um heimild eina að ræða í l. til að skipa 6 menn, sem ég sé þó ekki, að sé nauðsynleg, og ég treysti hæstv. ríkisstj. til að finna leiðir til að draga úr mannahaldi ríkisins, segi ég nei.