09.12.1948
Efri deild: 27. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 52 í B-deild Alþingistíðinda. (99)

27. mál, bifreiðaskattur o.fl.

Ásmundur Sigurðsson:

Herra forseti. Vegna áskorunar 1. þm. N–M. skal ég verða við þeirri ósk að taka brtt. mína aftur og flytja hana við 66. mál, þó að ég hafi ekki ætlað mér það, eins og ég hafði látið í ljós. Og geri ég það vegna þess, að mér skildist á ræðu síðasta ræðumanns, að möguleiki væri á, að menn fylgdu till. frekar, ef hún kæmi fram við 66. mál. Till. er því tekin aftur.