12.05.1950
Sameinað þing: 49. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 970 í B-deild Alþingistíðinda. (1188)

38. mál, fjárlög 1950

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Ég tek undir ummæli hæstv. viðskmrh. og vil taka fram til viðbótar, að þó að skömmtunarskrifstofan væri lögð niður og verkefni hennar flutt til fjárhagsráðs, væri aldrei hægt að spara nema litinn hluta af þeirri upphæð, sem hér er lagt til að strika út, þar sem svo áliðið er árs. Það þýðir þess vegna ekki að falsa fjárlögin með því að strika út þessa upphæð, sem ríkissjóður hvort sem er verður að borga, og segi ég því nei.