06.02.1950
Neðri deild: 41. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 990 í B-deild Alþingistíðinda. (1254)

11. mál, togarakaup ríkisins

Skúli Guðmundsson:

Herra forseti. Það eru nú þegar komnar þrjár brtt. við þetta frv., og er það sjálfsagt miklu þægilegra, ef þær eru prentaðar, svo að þingmenn gætu athugað þær nánar. Ég vildi því leyfa mér að spyrja hæstv. forseta, hvort ekki mundi unnt að fresta umr. þangað til síðar, er till. hafa verið prentaðar, og þá einnig aðrar brtt., sem berast kynnu, ef ástæða þætti til þess að koma fram með nýjar till.