28.04.1950
Efri deild: 95. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 999 í B-deild Alþingistíðinda. (1282)

11. mál, togarakaup ríkisins

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Herra forseti. Ég kvaddi mér hljóðs til þess að óska, að umr. yrði frestað og málið tekið af dagskrá nú, til þess að tóm gefist til að athuga ofurlítið betur efni frv., borið saman við ástæðurnar eins og þær eru nú orðið.