22.11.1949
Neðri deild: 3. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1006 í B-deild Alþingistíðinda. (1308)
15. mál, Sementsverksmiðja
Björn Ólafsson:
Herra forseti. Þetta frv. og grg., sem því fylgir, bendir óneitanlega til þess, hversu varhugavert það er oft að reiða sig á útreikninga sérfræðinga, sem lagðir eru fyrir þingið og það á að fara eftir. Það er ekki lengra síðan en á s.l. þingi, að lögin um sementsverksmiðju voru staðfest og talið var, að nægja mundu 15 millj. til framkvæmda. Þá yar gert ráð fyrir, að verksmiðjan risi á Vestfjörðum, en mér skilst, að væri hún reist þar nú, þyrfti til hennar enn meira lánsfé, en hér er farið fram á heimild til. Mér virðist því full ástæða til að beina því til þeirrar hv. n., sem um málið á að fjalla, að hún afgreiði það ekki fyrr en að vel athuguðu því máli, hvort áætlunin muni að fullu standast, að svo miklu leyti sem mögulegt er að skera úr um það.