15.05.1950
Neðri deild: 101. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1019 í B-deild Alþingistíðinda. (1324)

15. mál, Sementsverksmiðja

Ingólfur Jónsson:

Ég veit ekki, hvort valinn hefur verið hinn bezti hugsanlegi staður. En af því, að ég tel til tafar orðið að þrástagast um, hvar reisa eigi verksmiðjuna, og vegna þess, að ég tel, að ætla megi, að unað verði við þann, er verkfræðinganefndin hefur ákveðið, þá segi ég nei.