17.05.1950
Efri deild: 114. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1096 í B-deild Alþingistíðinda. (1476)
165. mál, skemmtanaskattur og þjóðleikhús o.fl.
Forseti (BSt):
Ég lít svo á, að till. sé frambærileg. Að vísu breytir það l., sem eru í gildi, en Alþ. er heimilt að breyta l., og ég sé ekki, að fjárl. séu þar nein undantekning frá öðrum l. Hitt er svo matsatriði fyrir hv. þm., hvort þeir telja rétt að samþ. svona till. En ég sé mér ekki fært að vísa neinni till. frá á þessum grundvelli. Till. yrði að koma í bága við stjskr. sjálfa, ef ætti að vera hægt að vísa henni frá, því það er heimilt að breyta l. með nýrri lögum.
Brtt. 814,2 (ný gr., verður 3. gr.) samþ. með 9:4 atkv.
2. gr. (verður 4. gr.) samþ. með 9 shlj. atkv. Brtt. 814,3 (ný 3. gr., verður 5. gr.) samþ. með 9 shlj. atkv.
— 814,4 samþ. án atkvgr.
Fyrirsögn, svo breytt, samþ. án atkvgr.
Frv. vísað til 3. umr. með 9:5 atkv.