17.05.1950
Efri deild: 115. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1097 í B-deild Alþingistíðinda. (1482)

165. mál, skemmtanaskattur og þjóðleikhús o.fl.

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðh. fyrir svarið. Ég var í gærkvöld saman með þjóðleikhússtjóra af tilviljun og spurði hann hins sama. Hann sagði: Það er ekki nærri búið, og hvað það kostar mikið, sem er eftir, það hef ég ekki hugmynd um, en það er mjög mikið. Þeim ber því illa saman, honum og hæstv. ráðherra.