20.12.1949
Efri deild: 24. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1573 í B-deild Alþingistíðinda. (151)

Þinghlé

Atvmrh. (Jóhann Jósefsson):

Ég þakka hæstv. forseta fyrir hinar góðu óskir hans og vinsamleg orð til okkar þdm. Vil ég leyfa mér fyrir hönd allra þdm. að óska honum sjálfum alls góðs og húsi hans og gleðilegra jóla, og óska ég, að við allir hittumst heilir til starfa að liðnum hátíðum. Ég vil biðja hv. þdm. að standa upp, hæstv. forseta til heiðurs og þessu til samþykkis. — [Þdm. risu úr sætum.]