17.05.1950
Efri deild: 115. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1575 í B-deild Alþingistíðinda. (165)

Starfslok deilda

forseti (BSt):

Nú geri ég fastlega ráð fyrir, að þetta verði síðasti fundur deildarinnar, og leyfi ég mér að endurtaka þakkir mínar til háttv. þingdeildarmanna, sem ég bar fram í gær, þegar ég bjóst við, að þá væri síðasti fundur hv. deildar, og árnaðaróskir mínar til þeirra.