17.05.1950
Neðri deild: 108. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1575 í B-deild Alþingistíðinda. (168)

Starfslok deilda

forseti (SB):

Þetta verður síðasti fundur deildarinnar að þessu sinni. Vil ég mælast til þess, að mér verði heimilað ásamt skrifara að ganga frá þeim fundargerðum. sem ekki hefur unnizt tími til að staðfesta. Skoða ég það samþ., þar sem enginn mælir því í gegn.

Ég þakka háttv. þingdeildarmönnum góða og ánægjulega samvinnu við mig á þessu þingi, óska utanbæjarþingmönnum fararheilla og góðrar heimkomu og deildarmönnum öllum gæfuríks sumars, og vona ég, að við megum öll heil hittast á næsta þingi.