17.12.1949
Neðri deild: 16. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1148 í B-deild Alþingistíðinda. (1683)

69. mál, ráðstafanir í sambandi við skilnað Íslands og Danmerkur

Finnur Jónsson:

Herra forseti. Sjútvn. hefur ákveðið að flytja þetta frv. eftir beiðni sjútvmrn., og hafa einstakir nm. óbundnar hendur um fylgi við frv. eða brtt., sem fram kunna að koma. Frv. er framhald af því, sem áður hefur verið gert hér á Alþ. og stendur í sambandi við ráðstafanir í sambandi við skilnað Íslands og Danmerkur. Leggur sjútvn. til, að frv. verði vísað til 2. umr.