10.01.1950
Efri deild: 25. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1158 í B-deild Alþingistíðinda. (1706)
69. mál, ráðstafanir í sambandi við skilnað Íslands og Danmerkur
Gísli Jónsson:
Herra forseti. Út af fyrirspurn frá hæstv. dómsmrh. skal ég leyfa mér að upplýsa, að sjútvn. sendi þetta mál til umsagnar Fiskifélagi Íslands fyrir jól og óskaði eftir að fá svar áður en þing kæmi saman. Þetta svar er ekki komið enn þá, en ég skal gera ráðstafanir í dag til að kalla eftir því. Hins vegar komu önnur gögn til n. í sambandi við málið, en fundur hefur ekki verið í sjútvn. af þeim ástæðum, að sumir nm. voru ekki komnir til þings fyrr en nú síðustu daga. Næsti fundur n. verður í fyrramálið kl. 11, og skal ég þá reyna að fá málið afgr. á fundinum, a.m.k. tekið fyrir.