17.05.1950
Sameinað þing: 52. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1578 í B-deild Alþingistíðinda. (175)

Þinglausnir

Forsrh. (Steingrímur Steinþórsson):

Í ríkisráði í dag var gefið út svo hljóðandi bréf: „Handhafar valds forseta Íslands (forsætisráðherra, forseti sameinaðs Alþingis og forseti hæstaréttar) gera kunnugt:

Að vér veitum hér með forsætisráðherra. Steingrími Steinþórssyni, umboð til þess í voru nafni að slíta Alþingi, 69. löggjafarþingi, er það hefur lokið störfum.

Ritað í Reykjavík 17. dag maímánaðar 1950. Steingrímur Steinþórsson, Jón Pálmason, Þórður Eyjólfsson.

/Steingrímur Steinþórsson.

Bréf handhafa valds forseta Íslands um þinglausnir.“

Samkvæmt þessu umboði lýsi ég hér með yfir, að þessu 69. löggjafarþingi, sem nú hefur lokið störfum sínum, er slitið.

Um leið og ég óska hv. þingmönnum velfarnaðar, vil ég biðja þá að rísa úr sætum sínum og minnast fósturjarðarinnar.

Þingmenn risu úr sætum, og forsætisráðherra mælti: „Lifi Ísland!“

Tók þingheimur undir þau orð með ferföldu húrrahrópi.

Var síðan af þingi gengið.