08.12.1949
Neðri deild: 9. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 25 í B-deild Alþingistíðinda. (177)

50. mál, tekjuskattsviðauki 1950

Fjmrh. (Björn Ólafsson):

Frv. þetta, sem hér liggur fyrir, um tekjuskattsviðauka fyrir árið 1950, er um framlengingu á eldri lögum, sem gilt hafa um nokkurra ára skeið. Það er ekki gert ráð fyrir, að hægt sé að komast á næsta ári af án þess, að þessi tekjuauki fáist í ríkissjóð. Þess vegna er lagt til, að þessi lög gildi áfram.

Ég tel óþarfa að fjölyrða frekar um frv., og vil leggja til, að frv. verði að lokinni umr. vísað til 2. umr. og hv. fjhn.