31.03.1950
Efri deild: 86. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1257 í B-deild Alþingistíðinda. (1954)

137. mál, dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna

Forseti (RÞ):

Mér hafa borizt tvær skrifl. brtt. við frv. frá Haraldi Guðmundssyni og Hannibal Valdimarssyni. Í fyrsta lagi brtt. á þessa leið: „Við 1. gr. Í stað orðanna „31. desember 1950“ í fyrsta málsl. komi: 30. apríl 1950.“ Og í öðru lagi brtt.. sem hv. þdm. hafa þegar heyrt. Fyrir þessum brtt. þarf tvöföld afbrigði, því að þær eru of seint fram komnar og þar að auki skriflegar, og leita ég þeirra hér með.