08.12.1949
Neðri deild: 9. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 27 í B-deild Alþingistíðinda. (197)

52. mál, gjaldaviðauki 1950

Fjmrh. (Björn Ólafsson):

Herra forseti. Þetta frv. um viðauka við ýmis gjöld til ríkissjóðs er um, að framlengd verði ákvæði, sem hafa verið framlengd frá ári til árs um nokkuð mörg ár, og er hér ekki um neina breyt. að ræða frá því, sem nú er. Hér er lagt til, að þessum viðaukum verði haldið fyrir árið 1950. — Vil ég leggja til, að frv. verði vísað til 2. umr. og hv. fjhn.