12.04.1950
Neðri deild: 81. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1266 í B-deild Alþingistíðinda. (1989)

135. mál, dánarvottorð og dánarskýrslur

Frsm. (Páll Þorsteinsson):

Herra forseti. 1. umr. þessa máls fór fram fyrir hátíðar, eða áður en þinghlé hófst. Þá lýsti heilbr.- og félmn. því yfir, að hún mundi athuga málið á milli umr. Nefndin hefur nú ekki unnið þetta verk, en hún vill þó greiða fyrir málinu þannig að 2. umr. þess ljúki nú. Hins vegar mun nefndin taka málið til athugunar á milli 2. og 3. umr.