25.04.1950
Neðri deild: 88. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1330 í B-deild Alþingistíðinda. (2105)

44. mál, verðlag, verðlagseftirlit og verðlagsdómur

Skúli Guðmundsson:

Herra forseti. Ég tel það sjálfsagt, að ekki sé leyfð nema einföld álagning á efni og framleiðslu saumastofa, og tel ég það verkefni verðgæzlustjóra að sjá um það. Þess vegna tel ég óþarft að vísa málinu til efri deildar að nýju og segi nei.