19.12.1949
Efri deild: 18. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 28 í B-deild Alþingistíðinda. (214)

52. mál, gjaldaviðauki 1950

Páll Zóphóníasson:

Ég hef bent á það hér áður, að ég teldi, að þessi framlengingarskattafrv., sem liggja fyrir þessu þingi, hefðu öll átt að afgreiðast í sambandi við fjárhagsgrundvöll næsta árs og að það sé rangt að slíta þau úr því sambandi, þar sem óvíst er enn, hve mikið fé ríkissjóður þarf að fá. Ég hef því ekki tekið þátt í atkvgr. þeirra og mun ekki heldur gera það viðkomandi þessu frv. og sit hjá.