06.05.1950
Neðri deild: 96. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1366 í B-deild Alþingistíðinda. (2210)

106. mál, útsvör

Gísli Guðmundsson:

Herra forseti. Ég vildi aðeins leyfa mér, áður en málið fer til 2. umr., að beina því til n., að hún kynni sér nánar, en þegar hefur verið gert í Ed. álit hreppsnefnda á málinu og þá fyrst og fremst þeirra, er hagsmuna hafa að gæta í sambandi við það, í Ed. var aðeins leitað álits fárra aðila, og ég tel því ástæðu til þess, þar sem þetta er vandasamt mál, að fleiri séu spurðir. Annað ætlaði ég ekki að segja, ég vildi aðeins beina þessu til hv. n.