09.05.1950
Neðri deild: 98. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1399 í B-deild Alþingistíðinda. (2266)

110. mál, sala nokkurra jarða í opinberri eigu

Sigurður Ágústsson:

Herra forseti. Hér er aðeins um heimild að ræða, sem Alþ. veiti stj. Ég geri ráð fyrir því, að þingið beri svo mikið traust til hæstv. ríkisstj., að hún geri eigi neitt, sem óeðlilegt má þykja í sambandi við makaskipti. Ég held, að engin ástæða sé til að óttast, þó að hæstv. ríkisstj. sé gefin heimild að láta slík skipti fara fram.