13.05.1950
Efri deild: 105. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1425 í B-deild Alþingistíðinda. (2331)
49. mál, húsaleiga
Finnbogi R. Valdimarsson:
Virðulegi forseti. Ég held hér á tveimur þskj. í hvorri hendi. í vinstri hendi held ég á frv. til l. um stóríbúðaskatt, sem flutt er af 3 hv. þm. Framsfl. hér í d., en í hægri hendi held ég á frv. því til l. um húsaleigu, sem hér er til umr. Ég er að þessu leyti eins og hv. Framsfl. Hann heldur á þessum tveimur frv., því fyrrnefnda í vinstri hendinni fyrir kosningar, en því síðarnefnda í hægri hendinni eftir kosningar. Hv. Framsfl. hefur talið það eitt af stefnumálum sínum að gera róttækar breytingar í húsnæðismálum bæjanna, og hann hefur viljað telja sig málsvara alþýðunnar í bæjum og kaupstöðum í þessum efnum. Ég hefði því búizt við, að hann reyndi að fá framgengt þeim róttæku aðgerðum, sem hann hafði boðað, og þegar frv. um stóríbúðaskatt var flutt, hefði ég búizt við, að flokkurinn berðist djarflega fyrir því, en það er nú að koma í ljós, að það er ekki það frv., heldur hitt, sem ég held á í hægri hendinni, sem á að ná fram að ganga. Í þessum frv. eru tvær gerólíkar stefnur. Stefnan í þessu frv., sem hér er til umr., er að gera ekki neitt í húsnæðismálum bæjanna. Hins vegar á að nema úr gildi l., sem hafa verndað fólkið í bæjunum, að vísu með nokkrum fresti, en stefnan er að gera ekki neitt, og það er ekki ný stefna, því að slík hefur lengi verið stefna Sjálfstfl. Einn af forustumönnum Sjálfstfl. lýsti yfir því á Alþingi á sínum tíma, að bezta stefnan í húsnæðismálunum væri að gera ekki neitt. Þessi maður er að vísu horfinn af þingi nú, en er eftir sem áður einn af ábyrgustu mönnum flokksins, og á ég hér við formann fjárhagsráðs, sem hefur í hendi sinni valdið til þess að leyfa umbætur í húsnæðismálunum, en sjálfsagðasta og bezta leiðin til þess er að byggja ný hús. Ekki eru heldur nema nokkur ár síðan hæstv. núv. dómsmrh., þáv. borgarstjóri í Reykjavík, lýsti yfir sömu stefnu. Fyrir hans atbeina var samþ. ályktun í bæjarstjórn Reykjavíkur þess efnis, að húsbyggingar væru bænum óviðkomandi. Hins vegar virðist Sjálfstfl. horfinn frá þessari stefnu, því að nú að undanförnu hefur bærinn látið byggja mikið og gott húsnæði, og er út á það aðeins að setja, að það hefur verið of dýrt fyrir fátækt fólk. En hin stefnan, sem Framsfl. hélt fram fyrir kosningar, er að gera róttækar ráðstafanir til þess, að það húsnæði, sem til er, sé notað til hin ýtrasta. Þetta var yfirlýst stefna flokksins, og kemur hún greinilega fram í frv., sem ég held á í vinstri hendinni. Þar á að leggja skatt á húsnæði, sem ekki er notað eins vel og skyldi. Einnig hefur verið bent á skömmtun húsnæðis. Hvort tveggja miðar að því, að vegna neyðarástands þess, sem nú ríkir í húsnæðismálunum, þá verði að nýta sem bezt allt húsnæði, sem til er. Þegar frv. um stóríbúðaskatt var til umr., sagðist hæstv. dómsmrh. vilja láta vel athuga ákvæði um slíkan skatt, en síður væri hann fylgjandi skömmtun. Hins vegar hefur hv. þm. Barð. frekar verið fylgjandi skömmtun, og lýsti hann yfir því, er frv. kom til n. Hann er aftur ákveðinn andstæðingur skattsins. Frv. um stóríbúðaskatt er ekki komið frá n., og ber þar m. a. til, að n. hefur eytt afar miklum tíma í stórmál, eins og tryggingamálin, en á þeim tíma, sem frv. var í athugun hjá n., rétt fyrir bæjarstjórnarkosningar, lagði Framsfl. opinberlega sem mesta áherzlu á að standa við stefnu sína í því frv. Hv. 8. þm. Reykv. tjáði sig að vísu fúsa til að fallast á breytingar á frv., t. d. um að draga úr refsiaðgerðum þess og lækka skattstigann. Ég held, að ég megi segja, að bæði ég og hv. 4. þm. Reykv. höfum einnig hallazt að því, að ákvæði frv. væru heldur róttæk, og að úr þeim mætti draga án þess, að frv. missti gildi sitt, en þegar að því kom, að n. ætti að afgreiða frv., þá kom í ljós, að aðeins eitt af þremur frv. um húsnæðismál, sem fyrir þessu þingi liggja, ætti að fá afgreiðslu samkv. samningum hv. stjórnarflokka, og það er frv., sem hér liggur fyrir til umr. Þá var sú breyting á orðin, að þeir hv. þm. Sjálfstfl., sem áður voru til viðtals um skömmtun húsnæðis eða breytt ákvæði um stóríbúðaskatt, tóku nú slíkt ekki í mál. Furðar mig ekki á því, þó að þeir hallist að sinni gömlu stefnu um að gera ekki neitt, og lít ég nú svo á, að Sjálfstfl. hafi aftur tekið upp þá stefnu að gera ekkert til að bæta úr neyð þeirra þúsunda alþýðufólks, sem búa í ófæru og heilsuspillandi húsnæði, eða þess fólks, sem hrakið verður út á götuna, ef þetta frv. nær fram að ganga óbreytt. Og ef þetta frv. nær fram að ganga óbreytt, þá hefur Framsfl. líka tekið upp þá gömlu stefnu íhaldsins, sem túlkuð var á sínum tíma af Magnúsi Jónssyni, stefnuna að gera ekki neitt. Með þeirri brtt., sem fyrir liggur, er sú ein breyting gerð að skjóta málinu á frest til aðgerða næsta Alþingis, þannig að í sumar skuli hæstv. félmrh. láta fara fram gagngera rannsókn á ástandinu og leggja svo till. til úrbóta fyrir næsta þing. Sé ég ekki, að það sé neitt neyðarbrauð fyrir flm. frv. um stóríbúðaskatt að hallast að þessari lausn. Framsóknarmenn ættu sízt að vantreysta hæstv. félmrh., og með þessu er Framsfl. gefið tækifæri til þess að marka stefnu sína á ný og leggja hana fyrir næsta Alþingi. Einmitt vegna þess, að ljóst er, að nú er miklum erfiðleikum bundið að byggja ný hús, þá er enn meiri ástæða til þess að gera allt, sem unnt er, til þess að það húsnæði, sem til er, verði notað sem bezt. Ég bíð eftir afstöðu þeirra hv. þm., sem fluttu frv. um stóríbúðaskatt, og afstöðu þess flokks, sem lýsti sig fylgjandi róttækum aðgerðum í húsnæðismálunum, til þessarar brtt. um að undirbúa svo sem bezt verði við komið till. til úrbóta í þessu þýðingarmikla vandamáli.