15.05.1950
Efri deild: 106. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1461 í B-deild Alþingistíðinda. (2348)

49. mál, húsaleiga

Landbrh. (Hermann Jónasson):

Herra forseti. Þetta mál hefur verið rætt og er til athugunar í ríkisstj., hvort ekki sé hægt að taka upp svipaðan hátt með úthlutun fjárfestingarleyfa og þessi till. gerir ráð fyrir. Þetta er þó ekki endanlega ákveðið enn þá. En ég vil taka það fram, að það er hægt að taka upp þennan hátt án þess að breyta lögum; slíkt er hægt að gera með reglugerð. Ákvörðun um þetta verður endanlega tekin seinna í sumar. Með tilliti til þessa segi ég nei.